top of page
VÁ-Ráðgjöf-logo

Stundum þarf ekki fleiri hugmyndir, 
heldur einhvern sem hefur reynslu
og getur hjálpað.

Mannauðsmál sem skapa árangur

Vá Ráðgjöf styður fyrirtæki og stjórnendur í að efla samskipti, takast á við krefjandi starfsmannamál og byggja upp vinnustaði þar sem ábyrgð og árangur fara saman. 

Ráðgjöfin byggir á faglegri reynslu úr stórum og fjölbreyttum vinnustöðum og miðar að því að styðja stjórnendur og teymi í að finna raunhæfar lausnir sem virka í daglegum rekstri.

Þróun stjórnenda og teyma

Skýrari forysta og sterkara samstarf.

Ég styð stjórnendur og teymi með markþjálfun, greiningu og markvissri þróun. Áhersla er á sjálfsvitund, skýr samskipti og betra samstarf sem skilar meiri stöðugleika og árangri í daglegu starfi.

Mountain River Gorge

Hagnýtar lausnir fyrir vinnustaði

Fagleg mannauðsráðgjöf sem styrkir samskipti, menningu og árangur

Samskipti og vinnustaðamenning

Ég styrki vinnustaði með reglulegum og uppbyggilegum samtölum milli stjórnenda og starfsfólks. Ég nýti Five Conversations eftir Dr. Tim Baker til að auka traust, skýrleika og ábyrgð — og gera samskipti að drifkrafti árangurs.

Samtöl sem styrkja menningu og árangur.

Ocean Waves at Sunset

Vinnustofur og námskeið

Ég býð gagnvirkar vinnustofur og námskeið sem veita hagnýt verkfæri til að bæta samtöl, skýra ábyrgð og takast á við flókin samskipti. Efnið er sérsniðið að ykkar aðstæðum og nýtist strax í starfi.

Hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegu starfi

Snow-Covered Mountain

Áherslur og fagleg nálgun

Ég trúi því að árangur í atvinnulífinu byggist á skýrri stefnu og mannlegum gildum. Aðferðafræðin sem ég styðst við  miðar að því að skapa jafnvægi á milli skipulagsheilda og einstaklinga með yfirvegaðri og faglegri nálgun. Ég legg áherslu á trausta ráðgjöf þar sem hlustun og vönduð greining eru undirstaðan í minni vinnu, án óþarfa málalenginga.

Hafðu samband og við finnum leiðina saman

bottom of page